9.9.2009 - - Fundur nr. 104 - Menntaráð

M E N N T A R Á Ð

Ár 2009, 9. september var haldinn 104. fundur menntaráðs. Fundurinn hófst kl. 10:00 í Björnslundi, útikennslustofu Norðlingaskóla og var fluttur í Norðlingaskóla eftir 4. lið fundar. Fundinn sátu Kjartan Magnússon formaður, Anna Margrét Ólafsdóttir, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Oddný Sturludóttir og Sigríður Pétursdóttir. Auk þeirra sátu fundinn Kjartan Eggertsson, áheyrnarfulltrúi F-lista, Hreiðar Sigtryggsson, áheyrnarfulltrúi Skólastjórafélags Reykjavíkur, Ólafur Mathiesen, áheyrnarfulltrúi SAMFOKs og Þorgerður L. Diðriksdóttir, áheyrnarfulltrúi Kennarafélags Reykjavíkur. Jafnframt sátu fundinn Ragnar Þorsteinsson fræðslustjóri, Auður Árný Stefánsdóttir, Jón Ingi Einarsson og Valgerður Janusdóttir.
Fundarritari var Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir.


Þetta gerðist:

Formaður bauð Ólaf Mathiesen velkominn á sinn fyrsta fund hjá menntaráði.

1. Davíð Leví Ólafsson, Ester Sara Ólafsdóttir, Ruth Tómasdóttir og Andri Fannar Arnarson, nemendur úr Norðlingaskóla, ásamt Sif Vígþórsdóttir skólastjóra og Ágústi Ólasyni deildarstjóra tóku á móti fundarmönnum í Björnslundi, útikennslustofu skólans, gengu með fundarmönnum um lundinn og kynntu það starf sem þar fer fram.

Bókun menntaráðs:
Menntaráð þakkar nemendum og skólastjórnendum Norðlingaskóla fyrir sérstaklega góðar móttökur. Menntaráðsfundurinn í Björnslundi var einstakur og ánægjulegt fyrir fulltrúa menntaráðs að fá innsýn í útikennslu Norðlingaskóla.
Menntaráð lýsir yfir ánægju með að útikennsla sé vaxandi þáttur í skólastarfi og telur að metnaðarfullt starf Norðlingaskóla á þessu sviði geti orðið öðrum skólum mikilvæg hvatning.
Ljóst er að starfið í Norðlingaskóla eykur fjölbreytni í skólastarfi Reykjavíkurborgar.

- Kl. 10:35 tók Elínbjörg Magnúsdóttir sæti á fundinum.

2. Lögð fram á ný svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem frestað var á fundi menntaráðs 26. ágúst sl.
Menntaráð Reykjavíkur leggur til að fræðslustjóri og starfshópur um lestrarstefnu leiti eftir samstarfi við Félag eldri borgara um að taka þátt í verkefninu: Lesum enn meira sem er sérstakt átak til að efla enn frekar lesskilning reykvískra grunnskólanema. Átakið verður tilraunaverkefni skólaárið 2009-2010. Markmiðið með verkefninu er að fá eldri borgara til að koma inn í grunnskólana til að lesa fyrir nemendur, hlusta á þá lesa og segja sögur til að auka áhuga þeirra á lestri og efla málvitund þeirra. Verkefnið yrði samstarfsverkefni Menntasviðs, grunnskóla í borginni og Félags eldri borgara.
Samþykkt með 4 samhljóða atkvæðum.

Áheyrnarfulltrúi F-lista óskaði bókað:
Fulltrúi F-lista lýsir yfir stuðningi við framkomna tillögu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um lestrarátak og samvinnu við félög eldri borgara.

Fulltrúi Vinstri grænna óskaði bókað:
Fulltrúi Vinstri grænna telur að samvera barna og eldri borgara í grunnskólum geti verið gefandi fyrir báða aðila eins og hefur sýnt sig í fjölmörgum þemaverkefnum í grunnskólum borgarinnar. Lestrarátak er, eins og öll lestrarkennsla, sérhæft viðfangsefni kennara sem ekki verður unnið í samvinnu við utanaðkomandi aðila. Ítrekað er mikilvægi samstarfs heimila og skóla um lestrarnám barna. Öðru máli gegnir um samstarf við frístundaheimili þar sem eldri borgarar gætu vafalaust veitt mörgum börnum margvíslegan stuðning.

Fulltrúar Samfylkingarinnar óskuðu bókað:
Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja öll verkefni sem efla samveru barna og eldri borgara í grunnskólum og öll verkefni sem efla félagsauð og samstarf í grenndarsamfélaginu. Eftirlitsskylda Menntasviðs með verkefnum af þessu tagi verður þó að vera skýr því lestrarkennsla, lestrarátak og aðstoð við heimanám í skólum er og verður sérhæft viðfangsefni kennara. Fulltrúar Samfylkingarinnar telja brýnt að samráð verði haft við Kennarafélag Reykjavíkur og félag grunnskólakennara á eftirlaunum varðandi öll verkefni af þessum toga.

Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks óskuðu bókað:
Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks binda góðar vonir við umrætt lestarverkefni og ítreka að á engan hátt er dregið úr eftirlitsskyldu Menntasviðs eða einstakra skóla með nemendum þótt slíkt samstarf eigi sér stað við utanaðkomandi aðila.

3. Lagt fram svar, dags. 6. september sl. við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar frá fundi menntaráðs 3. júní sl. um þróun fjárframlaga til sjálfstætt rekinna grunnskóla og þróun skólagjalda.

Fulltrúar Samfylkingarinnar óskuðu bókað:
Samfylkingin þakkar fjármálaskrifstofu Menntasviðs fyrir nákvæmt og gott yfirlit yfir þróun fjárframlaga til sjálfstætt rekinna grunnskóla og þróun skólagjalda. Þar kemur í ljós að fjárframlög til sjálfstætt rekinna grunnskóla jukust stórlega og ávallt umfram verðbólgu allt frá árinu 1995. Skólagjöld hafa lækkað nokkuð á sama tíma en ekki í takt við hækkun fjárframlaga. Vonandi verða þessar skýru tölur til þess að þagga niður í ómálefnalegri umræðu í upphrópunarstíl um meint svelti sjálfstætt rekinna skóla í tíð Reykjavíkurlistans.
Núverandi framlag til sjálfsætt rekinna grunnskóla stendur mjög nærri því framlagi sem greitt er vegna nemenda í almennum grunnskólum og ef tekið er tillit til skólagjalda hafa sjálfstætt reknu skólarnir hærri fjárhæð til ráðstöfunar á hvern nemanda. Á næstu vikum munu liggja fyrir útreikningar frá Hagstofu um lögbundið og reiknað framlag til sjálfstætt rekinna skóla. Vegna vísitölutengingar er gert ráð fyrir því að það framlag muni hækka verulega frá því sem nú er. Því er einsýnt að framlag til nemenda í sjálfstætt reknum skólum stefni í að verða hærra en með nemendum í almennum grunnskólum og að skólagjöld komi svo því til viðbótar. Á sama tíma er mjög þrengt að almennum grunnskólum í Reykjavík og þeim gert að mæta erfiðu efnahagsástandi með hagræðingu á öllum sviðum. Þessi þróun er umhugsunar- og áhyggjuefni.
Samfylkingin ítrekar að skerpa þarf á eftirlitsskyldu Menntasviðs með sjálfstætt reknum skólum, bæði þegar kemur að faglegum og fjárhagslegum þáttum. Skoðun Samfylkingarinnar er að skólaganga allra barna í borginni eigi að vera á ábyrgð Menntasviðs og menntaráðs.

Áheyrnarfulltrúi F-lista óskaði bókað:
Vegna ágætlega upplýsandi svars fjármálastjóra Menntasviðs við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar um þróun fjárframlaga til sjálfstætt rekinna grunnskóla bendir fulltrúi F-listans á nauðsyn þess að tölulegar upplýsingar í rekstri Menntasviðs séu aðgengilegar borgarfulltrúum og borgarbúum á veraldarvef Menntasviðs. Fulltrúi F-listans óskar eftir að fræðslustjóri taki það til athugunar.

Fulltrúi Vinstri grænna lagði fram svohljóðandi tillögu:
Menntaráð samþykkir að faglegar úttektir skuli gerðar á starfi allra sjálfstætt rekinna grunnskóla sem fá fjárframlög úr borgarsjóði eins fljótt og auðið verður. Fræðslustjóra verði falið að setja mat á þessum skólum í forgang en þó þannig að þeir fái eðlilega aðlögun að nýju lagaumhverfi.
Greinargerð fylgir.
Frestað.

4. Lagt fram svar, dags. 4. september sl. við fyrirspurn fulltrúa Vinstri grænna frá fundi menntaráðs 26. ágúst sl. um mataráskrift.

- Kl. 11:20 var fundurinn fluttur úr Björnslundi inn í Norðlingaskóla og Sigrún Elsa Smáradóttir tók sæti á fundinum.

5. Lagt fram erindi frá framkvæmdastjóra Hjallastefnunnar ehf. dags. 3. sept. sl. þar sem óskað er eftir áframhaldandi starfsleyfi fyrir Barnaskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík. Jafnframt lögð fram hugmyndafræði, námskrá og starfsáætlun skólans.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks lögðu fram svohljóðandi tillögu:
Menntaráð Reykjavíkur samþykkir umsókn Hjallastefnunnar ehf. um áframhaldandi starf Barnaskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík fyrir 6 til 9 ára börn. Starfsemi skólans skal vera í samræmi við lög sem gilda um grunnskóla, reglugerðir settar á grundvelli þeirra og aðalnámskrá grunnskóla. Starfsemi skólans skal fullnægja kröfum heilbrigðiseftirlits, eldvarnaeftirlits og vinnuverndar.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt með 4 samhljóða atkvæðum.

- Kl. 11:50 vék Elínbjörg Magnúsdóttir af fundi og Kristján Guðmundsson tók þar sæti.

Fulltrúar Samfylkingarinnar óskuðu bókað:
Samfylkingin leggst ekki gegn umsókn Hjallastefnunnar um stofnun sjálfstæðs rekins skóla í Reykjavík fyrir börn á yngsta stigi grunnskóla, að því gefnu að starfsleyfi frá ráðuneyti menntamála liggi fyrir, samanber 43. grein grunnskólalaga.
Hins vegar árétta fulltrúar Samfylkingarinnar þá sýn sína að:
1) Sjálfstætt reknir skólar eigi ekki að innheimta skólagjöld. Öll börn eiga að sitja við sama borð, óháð efnahag.
2) Sjálfstætt reknir skólar séu skólar án aðgreiningar og opnir öllum börnum, óháð atgervi.
Athygli skal vakin á því að 26 börn eru skráð í skólann, í 1. og 2. bekk. Samkvæmt upplýsingum sem liggja fyrir frá Barnaskóla Hjallastefnunnar er einn skólastjóri og fjórir kennarar starfandi við skólann. Þetta getur því varla talist hagkvæm rekstrareining og kemur spánskt fyrir sjónir á þessum tímum sem svo mjög er þrengt að almennum grunnskólum og skólastjórnendur hafa þurft að grípa til þess ráðs að fjölga í bekkjardeildum.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks óskuðu bókað:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks fagna samþykkt ráðsins á umsókn fyrir áframhaldandi starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík. Starfsemi skólans hefur aukið fjölbreytileika í skólastarfi í borginni og teljum við eðlilegt að menntaráð styðji við slíka þróun en reyni ekki að bregða fæti fyrir starfsemi sjálfstætt rekinna skóla.

6. Birna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri á skrifstofu fræðslustjóra, kynnti niðurstöður heildarmats á skólastarfi sem fór fram á vorönn síðasta skólaárs. Lögð var fram áætlun heildarmats skólaársins 2009-2010.

Bókun menntaráðs:
Menntaráð þakkar fyrir kynningu á mati á skólastarfi í Rimaskóla, Víkurskóla, Seljaskóla og Háteigsskóla. Framlagðar skýrslur veita dýrmætar upplýsingar um styrk og veikleika skólanna og munu án efa nýtast vel til að efla og bæta starf þeirra.
Menntaráð beinir því til skólastjóra umræddra skóla að kynna viðkomandi matsskýrslur fyrir foreldrum nemenda og gefa kost á umræðum um þær.

7. Rætt um fundahald um skólamál í hverfum. Formaður sagði frá því að haldnir voru fundir í öllum hverfum borgarinnar um skólamál sl. vetur. Framundan er fundur í Melaskóla og í Grafarvogi vegna tillögu um safnskóla á unglingastigi.

8. Fulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram svohljóðandi fyrirspurn:
Svo virðist sem vinna við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar sé á byrjunarreit. Vinna aðgerðarhóps er í skötulíki og því allsendis óvíst um leiðarljós borgarstjórnar fyrir næsta fjárhagsár og stærstu fagráð borgarinnar hafa enn ekki fengið neina fjárhagsramma til að vinna eftir. Ekki liggur fyrir út frá hvaða forsendum borgin ætlar að vinna að fjárhagsáætlun næsta árs. Nú er einnig að koma á daginn að fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir árið 2009 mun ekki standast.
Því er spurt:
1) Hvenær mega fagsvið borgarinnar eiga von á úthlutun
fjárhagsramma?
2) Hvenær munu forsendur fyrir fjárhagsáætlun næsta árs liggja fyrir?
3) Mun ramminn sem borgin hefur úthlutað Menntasviði vegna ársins 2009 standast, eða er hugsanlegt að hann verði skorinn niður?

Fundi slitið kl. 13:00

Kjartan Magnússon
Anna Margrét Ólafsdóttir Kristján Guðmundsson
Lilja Dögg Alfreðsdóttir Oddný Sturludóttir
Sigrún Elsa Smáradóttir Sigríður Pétursdóttir

Til baka